Bata sjúkraþjálfunar
Almennt
Bati sjúkraþjálfun hefur einsett sér að tryggja trúnað, áreiðanleika og tiltækileika persónuupplýsinga í hvívetna.
Í persónuverndarstefnu þessari er því lýst hvernig Bati sjúkraþjálfun vinnur með persónuupplýsingar skjólstæðinga sinna. Öll vinnsla fyrirtækisins á persónuupplýsingum fer fram á grundvelli laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“).
Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að rekja til tiltekins einstaklings. Hér má nefna upplýsingar á borð við nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, netfang, myndefni, netauðkenni, samskipti, bílnúmer og fleira. Í 2. tl. 3. gr. persónuverndarlaga má finna nánari útlistun á því hvað fellur undir hugtakið persónuupplýsingar.
Með vinnslu á persónuupplýsingum er átt við aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með persónuupplýsingar. Sem dæmi um vinnslu á persónuupplýsingum má nefna söfnun þeirra, skráningu, varðveislu, breytingu, miðlun, notkun, skoðun og fleira. Í 4. tl. 3. gr. persónuverndarlaga er nánar útskýrt hvað fellur undir hugtakið „vinnsla“.
Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili við vinnslu persónuupplýsinga er sá aðili sem ákveður tilgang og aðferðir við vinnsluna, sbr. 6. tl. 3. gr. persónuverndarlaga. Bati sjúkraþjálfun er í hlutverki ábyrgðaraðila þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinga um skjólstæðinga fyrirtækisins.
Samskiptaupplýsingar Bata sjúkraþjálfunar:
- Bati – Sjúkraþjálfun ehf., kt. 560299-2659
- Kringlunni 7, 103 Reykjavík
- Símanúmer: 553-1234
- Netfang: bati@bati.is
Persónuverndarfulltrúi
Bati sjúkraþjálfun hefur skipað persónuverndarfulltrúa í samræmi við persónuverndarlög. Hlutverk hans er að sinna innra eftirliti, fræða og ráðleggja starfsfólki um þær skyldur sem hvíla á fyrirtækinu með tilliti til persónuverndarlaga. Jafnframt er persónuverndarfulltrúi tengiliður við einstaklinga og Persónuvernd.
Samskiptaupplýsingar persónuverndarfulltrúa:
- Arnar Már Kristjánsson
- Netfang: personuvernd@bati.is
- Sími: 699-8666
Hvað er skráð um þig hjá Bata sjúkraþjálfun?
Þegar þú ferð á biðlista/bókar tíma
Óskir þú eftir þjónustu hjá okkur þarftu að fara á biðlista. Þegar pláss losnar hjá okkur færðu tíma og vinnum við þá með upplýsingar um nafn, kennitölu, hvenær þú ætlar að koma, hvaða sjúkraþjálfara þú ætlar að hitta og tegund þeirrar meðferðar sem um ræðir. Tilgangur þess er svo mögulegt sé að veita þér umbeðna þjónustu. Byggir heimild til vinnslu persónuupplýsinga á 2. tl. 9. gr. persónuverndarlaga og 8. tl. 1. mgr. 11. gr. sömu laga.
Þegar við minnum þig á tímann
Skjólstæðingar Bata geta valið að fá smáskilaboð send með áminningu um tímann sem þeir eiga bókaðan. Tilgangurinn er að draga úr hættu á að þú gleymir tímanum. Heimild til vinnslu persónuupplýsinga í þessu tilfelli byggir á 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga og 1. tl. 1. mgr. 11. gr. sömu laga.
Þegar þú mætir með beiðni
Til þess að fá niðurgreiðslu á kostnaði við sjúkraþjálfun frá Sjúkratryggingum Íslands þarftu að skila inn beiðni frá lækni. Slík beiðni inniheldur alla jafna upplýsingar sem tengjast heilsu þinni. Heimild til vinnslu persónuupplýsinga hér byggir á 3. tl. 9. gr. persónuverndarlaga og 8. tl. 1. mgr. 11. gr. sömu laga.
Á meðan á meðferð stendur
Á meðan á meðferð stendur skrá sjúkraþjálfarar Bata sjúkraþjálfunar niður nauðsynlegar upplýsingar sem tengjast meðferð þinni hjá fyrirtækinu. Á Bata sjúkraþjálfun hvílir skylda samkvæmt lögum nr. 55/2009 um sjúkraskrár að skrá niður upplýsingar um framvindu meðferðar þinnar hjá fyrirtækinu. Slík skráning er jafnframt forsenda þess að hægt sé að veita þér viðeigandi þjónustu og að sjúkraþjálfunin skili þér sem bestum árangri. Grundvallast heimild til vinnslu persónuupplýsinga í þessu tilfelli á 3. tl. 9. gr. persónuverndarlaga og 8. tl. 1. mgr. 11. gr. sömu laga.
Þegar við útbúum reikning
Þegar skjólstæðingur hefur nýtt sér þjónustu okkar er reikningur útbúinn. Á honum má finna upplýsingar um þá fjárhæð sem þú þarft að greiða vegna þjónustu okkar í tengslum við meðferð þína. Sjúkratryggingar Íslands taka þátt niðurgreiðslu á kostnaði við sjúkraþjálfun og eru reikningar því einnig sendir til stofnunarinnar. Heimild til vinnslu persónuupplýsinga vegna reikningagerðar byggir á 2. tl. 9. gr. persónuverndarlaga og 2. tl. 1. mgr. 11. gr. sömu laga.
Þegar þú sendir okkur tölvupóst eða hefur samband í gegnum heimasíðu
Þú getur sent Bata sjúkraþjálfun tölvupóst eða fyrirspurn í gegnum heimasíðu ef þú hefur einhverjar spurningar í tengslum við okkar starfsemi. Alla jafna byggir heimild til vinnslu persónuupplýsinga í þessum tilfellum á samþykki þínu, sbr. 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar þú átt í viðskiptum við okkur
Bati sjúkraþjálfun á í viðskiptum við ýmsa aðila sem taka að sér ákveðin verk fyrir hönd fyrirtækisins. Í þeim tilfellum þarf fyrirtækið óhjákvæmilega að vinna með persónuupplýsingar, einkum svo mögulegt sé að uppfylla samnings- og lagaskyldur. Heimild til þessa byggir alla jafna á 2., 3. og 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Þegar þú notar vefsíðuna okkar
Vefkökur eru litlar textaskrár sem eru geymdar á tölvunni þinni eða í öðrum snjalltækjum þegar þú heimsækir vefsíðu. Bati sjúkraþjálfun notar eftirfarandi vefkökur:
Nauðsynlegar vefkökur. Þessar kökur eru nauðsynlegar svo heimasíðan okkar virki með eðlilegum hætti. Heimild til þessa byggir á 6. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Tölfræðivefkökur. Bati sjúkraþjálfun notar vefkökur til að greina notkun á vefsíðu fyrirtækisins. Með því fást til dæmis upplýsingar um hversu margir notendur opna tilteknar undirsíður á vefsíðunni, hversu lengi þær eru skoðaðar, frá hvaða vefsíðum notendur koma inn á síðuna og hvers konar vafra þeir nota til að skoða hana. Heimild til þessa byggir á samþykki þínu, sbr. 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga
Miðlun persónuupplýsinga til þriðja aðila
Bati sjúkraþjálfun notar rafrænar lausnir frá þriðja aðila sem auðvelda fyrirtækinu að halda utan um og miðla upplýsingum. Eigendur lausnanna kunna að hafa aðgang að persónuupplýsingum. Fyrirtækið gerir ávallt vinnslusamning við viðkomandi þjónustuaðila í samræmi við kröfur persónuverndarlaga. Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu hans til að gæta fyllsta trúnaðar, tryggja öryggi og fara eingöngu með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli Bata sjúkraþjálfunar.
Í vissum tilfellum er persónuupplýsingum þínum einnig miðlað til þriðja aðila sem ekki er bundinn fyrirmælum fyrirtækisins um meðferð þeirra. Hérna er til dæmis átt við að reikningum þínum kann að vera deilt með Sjúkratryggingum Íslands eða þá að þú óskar eftir að tilteknum upplýsingum verði deilt með lögmanni þínum. Rétt er að geta þess að framangreindum aðilum ber ávallt að haga meðferð persónuupplýsinga í samræmi við persónuverndarlög, jafnvel þótt þeir séu ekki bundnir fyrirmælum fyrirtækisins um meðferð þeirra.
Öryggi persónuupplýsinga
Bati sjúkraþjálfun hefur gripið til tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana í því skyni að tryggja viðunandi öryggi persónuupplýsinga. Aðgangsstýringar eru að kerfum og húsnæði fyrirtækisins. Jafnframt fá starfsmenn reglulega þjálfun og fræðslu um hvernig gæta skuli að öryggi persónuupplýsinga. Öryggisráðstöfunum þessum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær breytist, glatist, verði birtar eða aðgangur verði veittur að þeim í leyfisleysi.
Varðveislutími persónuupplýsinga
Bata sjúkraþjálfun er óheimilt á grundvelli laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár að eyða persónuupplýsingum skjólstæðinga sinna án samþykkis landlæknis. Bókhaldsgögn eru geymd að lágmarki í sjö ár í samræmi við lög nr. 145/1994 um bókhald. Þegar ekki er þörf á, og heimilt er að eyða upplýsingum, gerir Bati sjúkraþjálfun það með öruggum hætti.
Réttindi þín
Þú nýtur ákveðinna réttinda samkvæmt persónuverndarlögum. Ef þú vilt neyta þessara réttinda þinna máttu hafa samband við okkur í gegnum netfangið personuvernd@bati.is. Við höfum einn mánuð til að svara erindi þínu en getum framlengt frestinn um tvo mánuði ef beiðnin er sérstaklega umfangsmikil. Rétt er að taka fram að réttindi þín eru ekki fortakslaus og kunna að vera háð ákveðnum skilyrðum. Hér er að finna yfirlit yfir helstu réttindi þín:
Réttur til aðgangs. Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að þínum gögnum og fá afrit af þínum persónuupplýsingum.
Réttur til leiðréttingar. Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þig sem eru rangar og ónákvæmar leiðréttar.
Réttur til eyðingar. Í ákveðnum tilfellum getur þú átt rétt á að þínum persónuupplýsingum sé eytt. Þetta á einkum við í þeim tilfellum þar sem upplýsingar eru ekki lengur nauðsynlegar, þú hefur andmælt vinnslunni, vinnslan reynist ólögmæt, eða ef vinnslan byggir á samþykki sem þú hefur afturkallað.
Réttur til að andmæla vinnslu. Byggi vinnsla okkar á persónuupplýsingum á lögmætum hagsmunum, og þú telur að hún brjóti gegn grundvallarréttindum þínum, þá getur þú andmælt vinnslunni. Við hættum þá vinnslunni nema við sýnum fram á ríkari hagsmuni af því að halda henni áfram.
Réttur til takmörkunar á vinnslu. Í eftirfarandi tilfellum átt þú rétt á að við stöðvum vinnslu persónuupplýsinga:
- Ef þú véfengir að persónuupplýsingar séu réttar (þar til við getum staðfest að þær séu réttar).
- Vinnslan er ólögmæt, en þú vilt ekki að persónuupplýsingunum sé eytt.
- Við þurfum ekki lengur á upplýsingunum að halda en þú þarfnast þeirra til að hafa uppi, stofna eða verja réttarkröfu.
- Þú hefur andmælt vinnslunni og við höfum ekki bent á ríkari hagsmuni af því að halda henni áfram.
Réttur til að afturkalla samþykki. Í þeim tilfellum þar sem við byggjum vinnslu á samþykki þínu er þér ávallt heimilt að afturkalla slíkt samþykki. Afturköllun á samþykki þýðir þó ekki að vinnslan sem fór fram áður en samþykki var afturkallað sé ólögmæt.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd. Teljir þú að ekki sé farið með persónuupplýsingar þínar í samræmi við persónuverndarlög átt þú ávallt rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is).
Frekari upplýsingar
Hafi þú frekari spurningar um hvernig Bati sjúkraþjálfun meðhöndlar persónuupplýsingar þínar getur þú ávallt sent okkur fyrirspurn á personuvernd@bati.is.
Endurskoðun
Persónuverndarstefna þessi getur frá einum tíma til annars tekið breytingum í samræmi við breytingar sem verða á viðeigandi lögum og reglugerðum eða ef breytingar verða á því hvernig Bati sjúkraþjálfun vinnur með persónuupplýsingar.